Hoppa yfir valmynd
30. maí 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úttekt á framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi

Mennta- og menningarmálaráðuneytið og ýmsir hagsmunaaðilar skólasamfélagsins standa fyrir úttekt á framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum í samstarfi við Evrópumiðstöð um nám án aðgreiningar og sérþarfir (European Agency for Special Needs and Inclusive Education). Samningur þar um var undirritaður 3. nóvember 2015.

Í aprílmánuði síðastliðnum komu sérfræðingar Evrópumiðstöðvarinnar til Íslands og unnu í eina viku að eigindlegum hluta úttektarinnar með viðtölum við hópa og einstaklinga sem tengjast menntakerfinu á Íslandi með einum og öðrum hætti, ásamt því að heimsækja nokkra skóla víða um landið. Allt að 300 hagsmunaaðilar tóku þátt í þessum lið úttektarinnar. Annar liður í úttektinni er vefkönnun sem beint er til skólastjórnenda, kennara, stuðningsstarfsfólks í skólum og foreldra á þessum þremur skólastigum og verður hún opin til 24. júní nk. Könnuninni er ætlað að auka gildi úttektarinnar með ítarlegum spurningum um viðhorf til innleiðingar stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi og er þess vænst að sem flestir svari könnuninni til að auka áreiðanleika úttektarinnar.

Sjá frétt á heimasíðu Evrópumiðstöðvarinnar hér

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum