Hoppa yfir valmynd
31. maí 2016 Forsætisráðuneytið

Aðgerðaáætlun fyrir Vestfirði

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra, að skipa nefnd undir forystu forsætisráðuneytisins sem vinni aðgerðaáætlun fyrir Vestfirði. Nefndin starfi í nánu samstarfi við önnur ráðuneyti og í samráði við stýrihóp ráðuneytanna um byggðamál og Fjórðungssamband Vestfirðinga. Lagt er til að nefndin skili tillögum eigi síðar en 31. ágúst næstkomandi.

„Fleiri svæði á landinu eiga undir högg að sækja og er reiknað með, ef framangreint verkefni gengur vel, að horft verði til sambærilegra aðgerða fyrir þau svæði. Það er mjög mikilvægt að áfram verði unnið markvisst að því að efla atvinnulíf og stuðla að fjölbreyttum atvinnutækifærum um allt land,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra, að loknum fundi ríkisstjórnar. 

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að samfélag sé samvinnuverkefni þar sem öll störf skipti máli og haldist í hendur og mikilvægt sé að hlúð sé að þeim sem þurfi á aðstoð að halda. Jafnframt að fólk fái notið árangurs erfiðis síns og hugkvæmni. Einnig kemur fram í yfirlýsingunni að ljóst sé að ákveðnar byggðir eigi við meiri erfiðleika að etja en aðrar og gera þurfi úttekt á þeim svæðum og móta tillögur um hvernig mæta megi aðsteðjandi vanda. Þá segir að unnið skuli að því að treysta byggð, auka verðmætasköpun og fjárfestingu og fjölga störfum á landsbyggðinni. 

Íbúum á Vestfjörðum í heild hefur fækkað úr um 8.500 í 6.900 eða um 20 % (1.673) frá 1. janúar 1998 til 1. janúar 2016. Mest fækkaði á fyrsta áratug þessara aldar en síðustu þrjú ár hefur verið ákveðið jafnvægi í heildarfjölda íbúa. Alvarlegust er þó þróunin er varðar aldurssamsetningu íbúa Vestfjarða. Þannig hefur fækkað um 30-40 % í aldurshópnum frá 0 - 40 ára og að sama skapi fjölgar í eldri aldurshópum. 

Alvarleg staða hefur skapast í samfélags- og atvinnuþróun á Vestfjörðum á síðustu áratugum. Batamerki sjást hinsvegar með fjölgun íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum, sem tengja má beint við uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu. Og greina má sambærileg tækifæri til uppbyggingar atvinnulífs á öðrum hlutum Vestfjarða. „Því má færa rök fyrir því að mögulegt sé að snúa þróun mála við með samstilltu átaki atvinnulífs og stjórnvalda,“ sagði forsætisráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum