Hoppa yfir valmynd
31. maí 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 1 2016

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 36.400
  2. Gisting í einn sólarhring " 25.200
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag " 11.200
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag " 5.600

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2016. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2015 dags. 28. október 2015.

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.

Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur .

Reykjavík, 27. maí 2016

Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum