Hoppa yfir valmynd
1. júní 2016 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Fjárfesting til framtíðar –hlutverk rannsókna og nýsköpunar

Rannsókna­þing 2016 og afhending Hvatningar­verðlauna Vísinda- og tækniráðs verður haldið 2. júní kl. 8:30 - 10:45 á Grand Hótel Reykjavík

Rannís skipuleggur Rannsóknaþing í samstarfi við Vísinda- og tækniráð þar sem tekin eru fyrir stefnumál á sviði rannsókna og nýsköpunar.

Á Rannsóknaþingi eru veitt Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs , en þau eru veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað framúr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi.

Morgunverður frá 8:00 - 8:30

Dagskrá:

8:30 Setning Rannsóknaþings
Illugi Gunnarsson, mennta - og menningarmálaráðherra

8:45 Stefna Vísinda - og tækniráðs, undirbúningur að nýrri stefnu fyrir tímabilið 2017 - 2020
Ragnhildur Helgadóttir, formaður vísindanefndar Vísinda - og tækniráðs, prófessor og deildarforseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík

9:00 Hugverk og nýsköpun
Ragnheiður Magnúsdóttir, formaður tækninefndar Vísinda - og tækniráðs, Business Manager Inside Sales, Marel

9:15 Aukin hagsæld
Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar

9:35 Stefna Evrópusambandsins í rannsóknum þróun og alþjóðlegt samstarf
Kostas Glinos, the Head of Unit dealing with Strategy and EFTA/EEA countries, International Cooperation directorate

10:00 Afhending Hvatningarverðlauna Vísinda - og tækniráðs
Fulltrúi dómnefndar gerir grein fyrir valinu. Sigurður Ingi Jóhannesson, forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs, afhendir verðlaunin.

10:25 Áhættugreining til að finna dulin æðasjúkdóm – ný nálgun
Dr. Vilmundur Guðnason, forstöðumaður Hjartaverndar gerir grein fyrir niðurstöðum rannsóknar sem var að hluta styrkt með Öndvegisstyrk Rannsóknasjóðs.

Fundarstjóri: Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís

Skrá þátttöku


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum