Hoppa yfir valmynd
2. júní 2016 Matvælaráðuneytið

Ný löggjöf um heimagistingu tekur gildi 1. janúar

Hús    (NN – norden.org)
Hús (NN – norden.org)

Með nýrri löggjöf um heimagistingu verður einstaklingum heimilt að leigja út heimili sitt og aðra fasteign sem hann/hún hefur til persónulegra nota í allt að 90 daga á ári án þess þurfa að sækja um rekstrarleyfi. Lögin munu taka gildi 1. janúar 2017.

Helstu markmiðin með nýrri löggjöf eru að bregðast við þróun í gistiframboði hér á landi og jafnframt að bregðast við miklum fjölda leyfislausrar gistingar. Þá eru í lögunum skýrð betur mörkin milli gististarfsemi í atvinnuskyni og tímabundinnar leigu af hálfu einstaklinga gegnum deilihagkerfið.

Áhrif breytinganna munu sjást m.a. í betri yfirsýn um gistiframboð, bættri skráningu og skilum skatttekna af gististarfsemi og einfaldara regluverki fyrir rekstrarleyfi.

Nánar um nýju löggjöfina

Í nýju löggjöfinni eru flokkar gististaða og mörk þeirra á milli skýrð nánar.

Í fyrsta lagi eru gististaðir skilgreindir sem staðir þar sem boðin er gisting til að hámarki 30 daga samfleytt í senn til sama aðila. Gisting til lengri tíma en 30 daga fellur þá undir húsaleigulög, nr. 36/1994.

Þá er gistiflokki heimagistingar er breytt þannig að hann nái til einstaklinga sem hyggjast leigja út lögheimili sitt og/eða eina aðra fasteign í sinni eigu sem viðkomandi nýtir persónulega. Heimilt verður að leigja út viðkomandi eignir samanlagt í allt að 90 daga á ári hverju eða þar til viðkomandi nær leigutekjum sem nema brúttó 2 milljónum króna.

Rétt er að taka fram að samhliða hefur verið samþykkt breytingu á lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Þar er veltumörkum skattskyldu og fjárhæðarmörkum uppgjörstímabila breytt á þann hátt að skylda til að innheimta virðisaukaskatt hefjist þegar tekjur ná 2.000.000 kr. í stað 1.000.000 kr. í dag. 

Að auki felst í frumvarpinu að einstaklingar sem ætla að bjóða upp á heimagistingu skv. nýrri skilgreiningu þurfi að skrá sig á vef sýslumanna og staðfesta að þeir uppfylli ákveðna kröfur um brunavarnir, ástand og samþykkt eignar sem íbúðarhúsnæðis. Fyrir skráningu verður greitt árgjald, 8000 kr. Þetta er ætlað til að einfalda og bæta eftirlit með leyfislausri starfssemi.

Einstaklingar sem skrá sig þurfa ennfremur að skila sýslumanni árlega nýtingaryfirliti og/eða tekjuyfirliti ásamt því að fá úthlutað skráningarnúmeri sem ber að birta og nota í allri markaðssetningu og eins ber að merkja viðkomandi húsnæði með númerinu.

Hvað varðar þá aðila sem eru í dag skráðir með rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki I, heimagisting, þá munu þeir halda leyfi sínu út gildistíma þess. Að loknum gildistíma þarf að sækja um nýtt leyfi og þá mögulega í flokki II ef rekstur uppfyllir ekki lengur skilyrði flokks I um tímalengd t.d. Ennfremur mun verða skilgreind ný tegund gistiheimila innan flokks II sem tæki m.a. til þeirra aðila sem hafa rekið heimagistingu skv. eldri skilgreiningu.

Ennfremur felst í frumvarpinu að rekstrarleyfi til veitingastaða og gististaða verða ótímabundin og eins verður aflétt rekstrarleyfisskyldu fyrir veitingastaðaflokk I, veitingastað án áfengisveitinga. Munu slíkir staðir þó enn þurfa starfsleyfi frá viðkomandi heilbrigðisyfirvöldum.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum