Hoppa yfir valmynd
6. júní 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frumvarp um námslán og námsstyrki

Mennta- og menningarmálaráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarp um námslán og námsstyrki.

Frumvarp um heildarendurskoðun laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna hefur verið lagt fyrir Alþingi. Markmið breytinga á lögunum er að tryggja áfram jafnan aðgang að námi, skapa aukið réttlæti og gegnsæi við úthlutun styrkja og að skapa fyrirsjáanleika fyrir námsmenn og lánasjóðinn. Jafnframt er markmiðið að tryggja námsmönnum fulla framfærslu og gefa þeim aukinn kost á að mennta sig án skuldsetningar.

Með frumvarpsinu er einnig brugðist við breytingum á íslensku menntakerfi og athugasemdum frá Ríkisendurskoðun og námsmönnum. Þá er stefnt að því að auka gagnsæi í nýtingu ríkisfjár með því að gera ríkisstyrki til námsmanna sýnilegri og jafnari en áður og að bregðast við áhættugreiningum sem gerðar hafa verið á núverandi námslánakerfi og þeirri þróun sem að óbreyttu yrði á því.

Umsögnum um frumvarpið skal láta ráðuneytinu í té fyrir 1. júlí nk. á netfangið  [email protected] merkt í efnislínu: Samráð um frumvarp til laga námslán og námsstyrki. Umsagnir er einnig hægt að senda með bréfpósti til mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík.

Frumvarp til laga um námslán og námsstyrki.

Upplýsingar um frumvarpið á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis

Upplýsingar og frumvarp á vef Alþingis

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum