Hoppa yfir valmynd
7. júní 2016 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss.

Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar nr. 486/2016 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á kjöti úr dýrum af nautgripakyni og osti og ystingi, fyrir tímabilið 1. júlí 2016 til 30. júní 2017:

Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr: kg % kr./kg.
ex0210.xxxx Nautgripkjöt - Vöruliður 0210: 01.07.16 - 30.06.17 10.000
Kjöt af dýrum af nautgripakyni:
0210.2001 -- Beinlaust 0 0
0210.2009 -- Annars 0 0
0406.xxxx Ostur og ystingur: 01.07.16 - 30.06.17 15.000 0 0

Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Tilboð skulu ráða úthlutun.

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 15:00 mánudaginn 13. júní 2016.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum