Hoppa yfir valmynd
10. júní 2016 Dómsmálaráðuneytið

Fangelsið á Hólmsheiði tekið formlega í notkun

Ólöf Nordal innanríkisráðherra ávarpar gesti við opnun nýs fangelsis á Hólmsheiði. - mynd
„Það er langþráður áfangi að geta nú tekið þetta hús í notkun,“ sagði Ólöf Nordal innanríkisráðherra við formlega athöfn í nýju fangelsi á Hólmsheiði í dag. Nýja fangelsið verður með 56 fangarýmum og þar verður sérstök deild fyrir kvenfanga og aðstaða fyrir afplánun stuttra fangelsisrefsinga og vararefsinga.

Fangelsið leysir af hólmi Hegningarhúsið við Skólavörðustíg í Reykjavík og fangelsið í Kópavogi sem hefur verið lokað. Þá verður gæsluvarðhaldsdeild á Litla-Hrauni lögð niður og aðstaða hennar tekin undir afplánun. Stefnt er að því að fyrstu fangarnir hefji afplánun í hinu nýja fangelsi í ágúst.

Fjöldi gesta var viðstaddur athöfnina og  fluttu þau Páll E. Winkel fangelsismálastjóri, Jón Ingi Jónsson, formaður Fangavarðafélags Íslands, og Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri ávörp auk ráðherra.  

Gestir við athöfnina í dag.

Hönnunarsaga

Arkís arkitektar ehf. hlutu fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni en niðurstöður hennar voru kynntar snemmsumars 2012. Höfundar tillögunnar eru Björn Guðbrandsson og Arnar Þór Jónsson arkitektar. Ráðgjafar voru Birgir Teitsson, Egill Guðmundsson og Friðrik Friðriksson arkitektar. Alls bárust 18 tillögur þegar efnt var til opinnar hugmyndasamkeppni um byggingu hins nýja fangelsis, átta frá innlendum aðilum og 10 frá erlendum.

Nýja fangelsið. Ljósm. Karl Petersson.Efnt var til samkeppni um listskreytingar og hlutu fyrstu verðlaun þær Anna Hallin og Olga S. Bergmann. Tillaga þeirra heitir Aboretum – trjásafn og er margþætt listaverk, þyrping 9 tegunda trjáa og ,,fuglahótel” með tilheyrandi fuglahúsum sem unnin eru í samvinnu við tréverkstæðið á Litla-Hrauni.

Framkvæmdir

Fyrsta skóflustungan var tekin 4. apríl 2013 og er byggingartíminn því rúm þrjú ár. Jarðvegsframkvæmdir hófust með fyrstu skóflustungunni í kjölfar útboðs og síðar um vorið var bygging fangelsisins boðin út. Samið var við ÍAV um byggingu hússins en fyrirtækið átti lægsta tilboð af þremur sem bárust. Kostnaður er alls 2,7 milljarðar króna að meðtöldum kostnaði við samkeppni og hönnun og lóðarfrágangi. Bæði verkáætlun og fjárhagsáætlun hafa staðist.

Ákveðið var að fangelsið yrði vottað samkvæmt alþjóðlega umhverfisvottunarkerfinu BEEAM og fellur það sérstaklega vel að öllum 10 meginreglum svokallaðs Nordic Built sáttmála. Með þeirri hugmyndafræði er við sköpun á manngerðu umhverfi leitast við að auka lífsgæði, nýta sjálfbærni, staðbundnar auðlindir og byggja á norrænni hönnunarhefð eins og hún gerist best.

----------------------------------------------------
Ljósmyndir af fangelsi: Karl Petersson.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum