Hoppa yfir valmynd
10. júní 2016 Matvælaráðuneytið

Ný hugverkastefna fyrir Ísland

Ráðherra og hópurinn að baki hugverkastefnunni: Borghildur Erlingsdóttir, Gunnar Örn Harðarson, Ragnheiður Elín, Þorlákur jónsson og Brynhildur Pálmarsdóttir - mynd
Í dag kynnti Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra hugverkastefnu undir heitinu „Hugverkaréttindi sem verðmæti og viðskiptatæki“. 

 

 

Hugverkastefnan fjallar um hugverkaréttinda á sviði iðnaðar, þ.e. þau hugverkaréttindi sem falla undir verkefnasvið ráðuneytisins en þau eru vörumerki, einkaleyfi, hönnunarskráningar og önnur skyld réttindi.  

Þetta er í fyrsta sinn sem unnið er að sérstakri stefnu varðandi hugverkaréttindi á sviði iðnaðar hér á landi og er stefnan gefin út í tilefni að 25 ára afmælisártíð Einkaleyfastofunnar.

Markmið stefnunnar er hugverkadrifið Ísland árið 2022 og sú framtíðarsýn er sett fram í skjalinu ásamt því að veita upplýsingar um réttindin, mikilvægi þeirra og mögulegar verndarleiðir ásamt aðgerðaráætlun til næstu fimm ára.

Aðgerðir hugverkastefnunnar miða að efttirfarandi þáttum sérstaklega:

  •  nýtingu sóknarfæra sem eru til staðar í samfélaginu í dag
  • eflingu vitundar og skilnings á hugverkaréttindum, mikilvægi þeirra og möguleikum til verndar hvort sem er með skráningu eða á annan hátt.
  • frekari menntun og rannsóknum á sviði hugverkaréttinda
  • skilvirku stjórnkerfi og lagaumhverfi í kringum réttindin, nýtingu og framfylgd þeirra.

Hugverkastefnan byggir á greiningu ýmissa skýrslna og rannsókna, á könnun sem ráðuneytið lét vinna fyrir sig árið 2015 sem og á öflugu samtali við fjölda aðila frá ýmsum geirum atvinnulífsins, fræðasamfélagsins og stjórnkerfis nýsköpunarmála. 

Ragnheiður Elín, Borghildur Einkaleyfastofustýra og Brynhildur sérfræðingur ráðuneytisins

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum