Hoppa yfir valmynd
13. júní 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Landkynning í Frakklandi í tengslum við EM

Mennta- og menningarmálaráðuneyti og fleiri standa að menningarviðburðum og landkynningu í tengslum við Evrópumeistaramótið í knattspyrnu karla. Í dag verður Rencontre Literaire Islandaise í París.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti, utanríkisráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og sendiráð Íslands í Frakklandi í samstarfi við Íslandsstofu standa fyrir menningarviðburðum og landkynningu í tengslum við Evrópumeistaramótið í knattspyrnu karla sem haldið verður í Frakklandi dagana 10. júní til 10. júlí nk.

Í dag 13. júní verður bókmenntaviðburðurinn Rencontre Literaire Islandaise í St Etienne bókabúðinni Librairie De Paris. Steinunn Sigurðardóttir og  Hallgrímur Helgason ásamt Valerie Landry og Alexandra Charroin Spangenberg ræða um íslenskar bókmenntir.  Teitur Magnússon tónlistarmaður mun leika nokkur lög eftir umræðurnar. Illugi Gunnarsson  mennta- og menningarmálaráðherra mun opna viðburðinn, sem hefst kl. 17.30.

Markmið landkynningarverkefnisins er nýta tækifærið sem gefst með EM til að kynna Ísland og allt sem íslenskt er í Frakklandi og verður m.a. efnt til margvíslegra list- og matarviðburða í París, St. Etienne og Marseille þar sem íslenska landsliðið spilar fyrstu leiki sína í keppninni.

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra opnar Menningarhátíðina Air d‘Islande 17.júní í La Criée leikhúsinnu í Marseille þar sem íslenska fjallkonan stígur á stokk í tilefni þjóðhátíðardagsins. Barði Jóhannsson flytur frumsamda tónlist við kvikmyndina HÄXAN, sem er meistaraverk frá tímabili þöglu myndanna og fjallar um nornir og galdra.

Þann 18. júní  verður Air d'Islande í Make It Marseille Galleríinu frá kl. 11.00 – 19.00 Sýnd verða vídeóverk og kvikmyndir eftir franskt og sænskt listafólk sem eiga það sameiginlegt að hafa unnið verkin á Íslandi. Verkin urðu til í samstarfi við Centre Pompidou safnið í París, SÍM á Íslandi, Statens kulturråd í Svíþjóð, Skaftell listamiðstöðina á Seyðisfirði, Norrænu listamannasamtökin og Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík.  Verkin bregða öll upp áhugaverðu ljósi af Íslandi og gefa áhorfendum mynd af upplifun listafólksins þar. Listamaðurinn Curver kemur fram og verður með "eigið herbergi" í rýminu. Snæbjörn Brynjarsson og Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson verða einnig með "eigið herbergi" í rýminu, og koma til með að vera með innsetningu og vídeólist, ásamt gjörningi.

 

Evróputorg í París, íslenskt hús á Ráðhústorginu í París og fleira

 

  • 17. júni verða þjóðarhátíðartónleikar með President Bongo og ADHD á La Machine du Moulin Rouge. Tónleikarnir byrja kl. 20.
  • 18. júní. Íslenskt hús verður á Ráðhústorginu í París frá 18. júní þar til keppnin er yfirstaðin. Þar verður almenn landkynning og efnt til ýmissa viðburða til að kynna íslenska menningu og mat.
  • 20. júní verður tónlistar- og matarviðburður á Evróputorginu í París frá kl. 18:00 bæði á íslenska svæðinu og í hvelfingu sem verður sett upp á torginu. Matvælasvið Íslandsstofu sér um matarsmakk með Viktori Erni Andréssyni matreiðslumeistara og keppanda í Bocuse d‘Or keppninni.
  • 20. - 23. júní verður tónlist við íslenska húsið. Margrét Arnardóttir og Birkir Blær spila íslensk dægurlög á harmónikku og saxófón.
  • 25. júní verður sett á laggirnar prjónavinnustofa þar sem íslensk prjónahefð og ull verður höfð í forgrunni.
  • 8.-10. júlí mun Snorri Helgason sjá um tónlist við íslenska húsið.

 

Myllumerkin sem verða notuð í kringum landkynninguna eru; #icelandsecret og #em2016.

Á Facebook síðu Íslandsstofu verður hægt að fylgjast jafnóðum með fréttum af landkynningarverkefninu í Frakklandi.


 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum