Hoppa yfir valmynd
13. júní 2016 Innviðaráðuneytið

Nýsamþykkt lög er lúta að rafföngum og brunaöryggi vöru

Alþingi samþykkti á síðustu starfsdögum sínum breytingar á lögum um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga sem og breytingar á lögum um brunavarnir. Lagabreytingarnar eru tilkomnar vegna innleiðinga á tilskipunum Evrópusambandsins 2014/35/ESB, 2014/30/ESB og 2014/34/ESB.

Breytingar á lögum um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga lúta að öryggi raffanga sem notuð eru innan ákveðinna spennumarka og fjalla einnig um búnað, tæki og fastan búnað sem getur valdið rafsegultruflunum eða orðið fyrir slíkum truflunum.

Breytingar á lögum um brunavarnir varða búnað og verndarkerfi sem eru ætluð til notkunar í hugsanlegu sprengifimu lofti. Gert er ráð fyrir að Mannvirkjastofnun annist markaðseftirlit með þessum vörum. Helstu breytingar á umræddum lögum lúta að skipulagi markaðseftirlits, samræmingu viðbragða gagnvart rafföngum og búnaði sem ekki uppfylla kröfur og skilgreiningu á hlutverki aðila í aðfangakeðjunni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum