Endurskoðaðar verklagsreglur fagráðs eineltismála í grunnskólum
Breytingar voru gerðar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélag Íslands og byggja m.a. á reynslu af störfum fagráðsins.
Nýlega voru birtar á vef Stjórnartíðinda
endurskoðaðar verklagsreglur um starfsemi fagráðs eineltismála í grunnskólum,
sem Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra undirritaði í maí sl.
Breytingar voru gerðar á
verklagsreglunum í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og
Skólastjórafélag Íslands og byggja m.a. á reynslu af störfum fagráðsins. Haft
var að leiðarljósi við gerð breytinganna að verklagsreglurnar þjóni sem best
tilgangi sínum.
Meðal helstu breytinga má nefna að fleiri aðilar en foreldrar og skólar geta nú óskað eftir aðkomu
fagráðs. Bæst hafa við nemendur, starfsfólk skóla, auk annarra aðila sem starfa
með börnum í skóla-, frístunda- eða tómstundastarfi með stoð í
grunnskólalögum. Þessir aðilar geta óskað eftir aðkomu fagráðsins ef ekki tekst
að finna fullnægjandi lausn innan skóla eða sveitarfélags, þrátt fyrir aðkomu
starfsfólks skóla og skólaþjónustu sveitarfélaga. Sömu aðilar geta jafnframt
vísað máli til fagráðs vegna meints aðgerðaleysis skóla eða sveitarfélags.
Einnig er kveðið á um skipun varamanna ráðsins og hlutverk og ábyrgð
verkefnastjóra skilgreint.
Fagráðið starfar á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytis en Menntamálastofnun annast umsýslu þess. Starfsmaður þess er Erla Ósk Guðjónsdóttir, [email protected]
Vakin er athygli á vefsíðu fagráðs eineltismála í grunnskólum: www.gegneinelti.is