Hoppa yfir valmynd
21. júní 2016 Dómsmálaráðuneytið

Atkvæði greidd utan kjörfundar erlendis sendist sýslumönnum eða kjörstjórnum

Hér er tengill til uppflettingar í kjörskrá. 

Eftir að kjósandi hefur greitt atkvæði hjá kjörstjóra er kjörseðilsumslag og fylgibréf sett í forprentað sendiumslag ætlað sýslumanni/kjörstjóra og lokað fyrir. Á bakhlið þess eru upplýsingar um kjósanda sem hann verður að fylla út svo atkvæðið rati á réttan stað. Vilji kjósandi ekki að nafn hans, kennitala og lögheimili sé sýnilegt öðrum er honum heimilt að setja þetta umslag ofan í annað og merkja það viðkomandi sýslumanni eða kjörstjórn.

Utankjörfundaratkvæði skal vera komið í hendur kjörstjórnar fyrir lok kjörfundar á kjördag svo hægt sé að taka það til greina við kosninguna. Nóg er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandi er á kjörskrá.

Listi með embættum sýslumanna er birtur hér að neðan en sé ekki ljóst hvert atkvæðið á að fara má senda það til embættis sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Það embætti mun sjá um að koma atkvæðinu á réttan stað berist það fyrir kl. 17 á kjördag.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum