Hoppa yfir valmynd
27. júní 2016 Forsætisráðuneytið

Nefnd um samfélags- og atvinnuþróun á Vestfjörðum

Á fundi ríkisstjórnarinnar 31. maí 2016 var samþykkt að skipa nefnd til að vinna aðgerðaráætlun á sviði samfélags- og atvinnuþróunar fyrir Vestfirði. Vinnan er undir forystu forsætisráðuneytisins en mun fara fram í nánu samstarfi við þau ráðuneyti sem við eiga og í samráði við stýrihóp ráðuneytanna um byggðamál.

Nefndin hefur nú verið skipuð og í henni sitja: Ágúst Bjarni Garðarsson, fulltrúi forsætisráðuneytisins og formaður nefndarinnar, Hanna Dóra Hólm Másdóttir, fulltrúi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, sem jafnframt er starfsmaður nefndarinnar, Daníel Jakobsson, fulltrúi norðanverðra Vestfjarða, Aðalbjörg Óskarsdóttir fulltrúi Stranda og Reykhólahrepps og Valgeir Ægir Ingólfsson, fulltrúi sunnanverðra Vestfjarða. Samráð verður haft við fjórðungssamband Vestfjarða við mótun tillagna.

Gert er ráð fyrir að nefndin skili tillögum eigi síðar en 31. ágúst 2016. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í nefndinni.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum