Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2016 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 55/2016 Úrskurður 24. júní 2016

Mál nr. 55/2016                     Eiginnafn: Sakura

 

              

 

Hinn 24. júní 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 55/2016 en erindið barst nefndinni 2. júní:

Eiginnafnið Sakura (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Sakuru, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sakura (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum