Hoppa yfir valmynd
15. júlí 2016 Matvælaráðuneytið

Stjórn Flugþróunarsjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki

Markmiðið með Flugþróunarsjóði er að styðja við uppbyggingu nýrra flugleiða til Íslands þannig að koma megi á reglulegu millilandaflugi um alþjóðaflugvellina Akureyri og Egilsstaði Með því er stuðlað að dreifingu ferðamanna um landið í samræmi við Vegvísi í ferðaþjónustu, bættri nýtingu innviða ríkisins, bættum búsetuskilyrðum og lífsgæðum heimamanna og bættum rekstrarskilyrðum atvinnureksturs á Norður- og Austurlandi.

Flugþróunarsjóðurinn veitir tvenns konar styrki:

Styrkir úr leiðarþróunardeild miðast við ákveðna upphæð fyrir hvern farþega sem lendir á Akureyri eða á Egilsstöðum.

Styrkir úr markaðsþróunardeild eru ætlaðir til kynningar á þeim flugleiðum sem um ræðir.

Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2016. Umsóknum skal skilað rafrænt á sérstöku umsóknareyðublaði til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á netfangið [email protected]

Nánari upplýsingar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum