Hoppa yfir valmynd
16. ágúst 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um styrki til atvinnuleikhópa

 Leiklistarráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til starfsemi atvinnuleikhópa á árinu 2017. 

Veittir eru styrkir til einstakra verkefna eða starfssamninga til tveggja ára. 

Umsóknarfrestur er til kl. 17:00 þann 30. september 2016.  Umsóknum skal skilað rafrænt á www.rannis.is

Einungis er tekið við rafrænum fylgigögnum með umsókn. Athugið að umsókn um styrki til starfsemi atvinnuleikhópagetur einnig gilt sem umsókn til Listamannalauna ef umsækjandi merkir við þar til gerðan reit í umsóknarformi.

Samkvæmt leiklistarlögum nr. 138/1998 skilar Leiklistarráð tillögu til mennta- og menningarmálaráðuneytisins umúthlutun fjár til stuðnings atvinnuleikhópum. 

Nánari upplýsingar:

[email protected]
www.rannis.is  
Rannís, Borgartúni 30, 105 Reykjavík. 




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum