Hoppa yfir valmynd
16. ágúst 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Aukið frelsi - losun fjármagnshafta

Frelsi einstaklinga og fyrirtækja til fjármagnshreyfinga til og frá landinu og til gjaldeyrisviðskipta eykst verulega samkvæmt frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra sem lagt verður fram á Alþingi á morgun.

Frumvarpið er liður í áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta sem kynnt var 8. júní 2015. Með því eru stigin veigamikil skref í átt að fullri losun fjármagnshafta. Frumvarpið er unnið í samræmi við ráðleggingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins með efnahagslegan stöðugleika og almannahag að leiðarljósi.

Lagt er til að við gildistöku frumvarpsins verði:

  • Bein erlend fjárfesting innlendra aðila ótakmörkuð en háð staðfestingu Seðlabanka Íslands.
  • Fjárfesting í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri, öðrum peningakröfum í erlendum gjaldeyri og fyrirfram- og uppgreiðsla erlendra lána verði frjáls upp að ákveðnu fjárhæðarmarki,  að uppfylltum tilteknum skilyrðum
  •  Einstaklingum veitt heimild til kaupa á einni fasteign erlendis á almanaksári, óháð tilefni og kaupverði.
  • Dregið úr skilaskyldu innlendra aðila á erlendum gjaldeyri. Hún verði afnumin vegna lántöku einstaklinga hjá erlendum aðilum til kaupa á fasteign eða farartæki eða til fjárfestinga erlendis.
  • Ýmsar sértækar takmarkanir afnumdar eða rýmkaðar, m.a. heimildir einstaklinga til kaupa á ferðagjaldeyri. 
  • Heimildir Seðlabanka Íslands til upplýsingaöflunar verða auknar svo hann geti betur stuðlað að verðlags- og fjármálastöðugleika.

Fyrsta janúar 2017 verði:

  • Fjárhæðarmörk hækkuð til fjárfestinga í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri, öðrum peningakröfum í erlendum gjaldeyri og fyrirfram- og uppgreiðslu erlendra lána.
  • Innstæðuflutningur heimilaður innan ofangreindra fjárhæðarmarka.  Skilyrði um innlenda vörsluaðila erlendra verðbréfafjárfestinga fellt niður. Þar með munu innlendir og erlendir aðilar geta flutt innstæður og verðbréf til og frá landinu og átt viðskipti með verðbréf erlendis innan þeirra marka sem frumvarpið setur þeim.
  • Heimildir einstaklinga til kaupa á gjaldeyri í reiðufé rýmkaðar verulega.

Með þeim ráðstöfunum sem settar eru fram í frumvarpinu ættu fjármagnshöftin ekki að setja þorra einstaklinga verulegar skorður og mjög fáum eftir næstu áramót. Áætlað er að þær breytingar sem frumvarpið felur í sér muni leiða til þess að beiðnum um undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál fækki um 50–65%. Jafn· framt má gera ráð fyrir því að afgreiðslutími undanþágubeiðna styttist til muna. Frumvarpið hefur ekki áhrif á heimildir aflandskrónueigenda. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum