Hoppa yfir valmynd
23. ágúst 2016 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Samið um kennslu- og rannsóknastarfsemi á sviði lögreglufræða

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að ganga til samninga við Háskólann á Akureyri vegna kennslu- og rannsóknarstarfsemi á sviði lögreglufræða.

Ákveðið var að fela Ríkiskaupum að annast auglýsingu um val á framkvæmdaraðila og halda utan um matsferlið.

Skilafrestur þátttökutilkynninga var 22. júlí 2016 og bárust gögn frá fjórum aðilum: Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum á Bifröst og Háskólanum í Reykjavík.  Umsókn Háskólans á Bifröst uppfyllti ekki hæfiskröfu um viðurkenningu til kennslu í sálfræði. 

Ráðherra skipaði þann 20. júlí s.l. matsnefnd um lögreglunám á háskólastigi sem fékk það hlutverk að fara yfir innsend gögn.

Niðurstaða matsnefndar var að þrír umsækjendur væru hæfir til að taka við kennslu- og rannsóknarstarfsemi á sviði lögreglufræða. Innbyrðis skipting stigafjölda þeirra umsækjenda sem uppfylltu lágmarksskilyrði var eftirfarandi:

  • Háskóli Íslands                128 stig af 135
  • Háskólinn á Akureyri      116 stig af 135
  • Háskólinn í Reykjavík     110 stig af 135 

Ráðherra hefur ákveðið að ganga til samninga við Háskólann á Akureyri um kennslu- og rannsóknarstarfsemi á sviði lögreglufræða í samræmi við ákvæði 21. gr. laga um háskóla. 

Að mati ráðherra uppfyllti Háskólinn á Akureyri mjög vel þær kröfur sem gerðar eru um gæði náms og aðbúnað til lögreglumenntunar.  Þá telur ráðherra aðstæður við HA til þess fallnar að gera nemendum af landinu öllu kleift að leggja stund á lögreglunámi.  Að auki er með þessari ákvörðun skotið styrkari stoðum undir fjölbreytta starfsemi Háskólans á Akureyri.




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum