Hoppa yfir valmynd
2. september 2016 Matvælaráðuneytið

Markmiðið er að efla íslenskan tónlistariðnað

Tónlistarmenn munu fá endurgreiddan 25% af kostnaði vegna hljóðritunar á tónlist sinni á Íslandi verði frumvarp Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar tónlistar að lögum. Frumvarpið byggir á sömu hugmyndafræði og lög um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar en þau hafa verið ein af forsendunum fyrir eflingu kvikmyndaiðnaðarins á Íslandi á undanförnum árum með tilheyrandi jákvæðum efnahagslegum sem menningarlegum áhrifum. 

Markmið frumvarpsins er að efla tónlistariðnaðinn sem iðngrein hér á landi með því að styðja við hljóðritun tónlistar. Í frumvarpinu er lagt til að útgefendur tónlistar njóti ívilnana í formi endurgreiðslu á hluta af kostnaði sem fellur til við hljóðritun tónlistar. Sá kostnaður sem gert er ráð fyrir að verði endurgreiðsluhæfur er tímagjald í hljóðveri, launakostnaður aðkeyptra flytjenda og tæknimanna, eftirvinnsla, ferða- og flutningskostnaður og eigin vinna tónlistarmannsins.

Þrátt fyrir að vegur íslenskrar tónlistar hafi farið ört vaxandi á undanförnum árum hefur rekstrargrundvöllur útgáfuaðila tónlistar á Íslandi aftur á móti veikst. Má það rekja til þess að rafræn sala á tónlist hefur ekki enn náð fótfestu og sala á hljómdiskum hefur hrunið. Íslenskur tónlistariðnaður býr að auki við erfið starfskilyrði sökum smæðar markaðs og takmarkaðs fjármagns.

Það endurgreiðslukerfi sem hér er lagt til á sér ekki hliðstæðu og er því vonast til að erlendir aðilar sjái sér leik á borði með að koma og hljóðrita tónlist á Íslandi og að slík innkoma geti gefið íslenskum tónlistariðnaði sömu jákvæðu innspýtinguna og endurgreiðslukerfið hefur gert fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað.

Lagt er til að frumvarpið öðlist gildi 1. janúar 2017 og að gildistími laganna verði til næstu fimm ára.

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum