Hoppa yfir valmynd
7. september 2016 Utanríkisráðuneytið

Hagsmunamat Íslands á norðurslóðum og staða Norðurskautsráðsins

Hagsmunamat á norðurslóðum - mynd

Norðurskautsráðið er 20 ára um þessar mundir og að því tilefni er efnt til tveggja viðburða í þessari viku um norðurslóðamál á Akureyri og í Reykjavík. 

Fyrst er að telja skýrslu ráðherranefndar um hagsmunamat á norðurslóðum, sem verður kynnt á fundi í Háskólanum á Akureyri á morgun, fimmtudag, frá 14-16. Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra opnar fundinn en Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, Ólöf Nordal innanríkisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra, munu einnig flytja þar ávörp. Að því loknu verða hringborðsumræður um tækifæri og  áskoranir á norðurslóðum. 

Á föstudag erður sjónum beint að Norðurskautsráðinu, á málstofu sem haldin verður í Norræna húsinu nú á föstudag frá 13-16. Fyrri hluti málstofunnar fer fram á íslensku og fjallar um starfsemi ráðsins en sá seinni, sem fram fer á ensku, skoðar stöðu og framtíð ráðsins með hliðsjón af þróun mála í alþjóðasamfélaginu. Magnús Jóhannesson, framkvæmdastjóri Norðurskautsráðsins,  og Valur Ingimundarson, prófessor við Háskóla Íslands stýra málstofunum.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum