Hoppa yfir valmynd
8. september 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Styrkir til úttekta á aðgengismálum fatlaðs fólks

Hjálpartæki
Hjálpartæki

Velferðarráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar styrki til úttekta á aðgengismálum fatlaðs fólks. Styrkirnir eru veittir í samræmi við framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks þar sem gert er ráð fyrir úttektum á aðgengi að opinberum byggingum, umferðarmannvirkjum og öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að.

Sveitarfélög bera ábyrgð á úttektum (sbr. aðgerðalið A.1 í áætluninni) en markmið þeirra er að leiða í ljós stöðu aðgengismála í hlutaðeigandi sveitarfélagi. Í framhaldi af úttekt verði gerð áætlun um úrbætur ef við á.

Velferðarráðuneytið mun veita styrki til þess að framkvæma umræddar úttektir. Auglýst er eftir umsóknum frá sveitarfélögum sem ljúka slíkri úttekt á yfirstandandi ári. Þjónustusvæði sem samanstanda af fleiri en einu sveitarfélagi, sem og ferlinefndir, geta einnig sótt um styrk.

Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 10. október 2016. Starfshópur metur umsóknir en forsenda fyrir greiðslu styrks er að ráðuneytinu hafi borist afrit af úttekt sem lýsi stöðu aðgengismála í sveitarfélaginu. Reiknað er með að þessum afritum verði skilað eigi síðar en 1. desember 2016 og greiðsla styrksins fari fram fyrir áramót.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum