Hoppa yfir valmynd
13. september 2016 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Reglugerð um gæði eldsneytis í kynningu

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að reglugerð um gæði eldsneytis.

Markmið reglugerðarinnar er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á vistferli og hugsanlegum skaðlegum áhrifum eldsneytis á heilsu fólks og umhverfi.

Gert er ráð fyrir að reglugerðin gildi um ökutæki og færanlegan vélbúnað til nota utan vega, þ.m.t. skip í siglingum á skipgengum vatnaleiðum þegar þau eru ekki á sjó, dráttarvélar fyrir landbúnað eða skógrækt og skemmtibáta þegar þeir eru ekki á sjó og tækniforskriftir fyrir eldsneyti.

Um er að ræða innleiðingu EES-gerðum er varða gæði bensíns og dísileldsneyti.

Umsögnum um reglugerðardrögin skal skilað fyrir 22. september nk. á netfangið [email protected] eða í bréfpósti, á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Drög að reglugerð um gæði eldsneytis (word skjal)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum