Hoppa yfir valmynd
3. október 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Öll börn í 6. og 7. bekk fá afhentar forritanlegar smátölvur

Átak til að efla forritunarkunnáttu íslenskra barna

Fulltrúar mennta- og atvinnulífs hafa sameinast um átaksverkefni til þess að vekja áhuga barna á forritun og kenna þeim á einfaldan og skemmtilegan máta að forrita. Menntamálaráðherra, Illugi Gunnarsson, kynnir verkefnið í dag kl. 11.00 í húsnæði Fab-Lab í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Austurbergi 5. Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Menntamálastofnun og  RÚV hafa tekið höndum saman um átaksverkefnið með það að markmiði að efla forritunarkunnáttu íslenskra barna, auka vitund um mikilvægi forritunar í daglegum störfum, efla rökhugsun og stuðla að auknum áhuga á tækni- og iðngreinum.

Verkefnið felst í því að Microbit, forritanleg smátölva, verður gefin öllum grunnskólabörnum í 6. og 7. bekk. Samhliða því verða kynnt fjölþætt verkefni, fræðsluefni og leiðir sem nemendur, kennarar og foreldrar geta nýtt sér til að kynnast heimi forritunar m.a. með notkun Microbit tölvunnar. Forritunarvinna reynir ekki aðeins á rökhugsun heldur einnig hugmyndauðgi, skapandi hugsun og lausnamiðaða nálgun. Á næstu vikum verða í kringum 9000 Microbit smátölvur afhentar.  

Microbit er forritanleg tölva sem er hönnuð af BBC og fjölda samstarfsaðila til að vekja áhuga barna á forritun og kenna þeim forritun. Microbit er einskonar byrjendaútgáfa af Raspberry Pi eða Arduino tölvunum en verkefnið var upphaflega sett í gang í Bretlandi þar sem mikill skortur er á kennurum sem geta kennt forritun og því vantar að fleiri nemendur skili sér inn í heim tækni og forritunar.

Samtök iðnaðarins telja það mikið hagsmunamál að efla íslenskt menntakerfi með forritunarkennslu enda mikilvægt fyrir íslensk hugverkafyrirtæki og íslenskan iðnað. Menntamálastofnun hefur umsjón með dreifingu tölvanna til þeirra skóla sem vilja taka þátt,  RÚV tekur þátt í verkefninu með því að vinna þætti, fræðsluefni og myndbönd fyrir krakka sem vilja vita meira um forritun en líka fyrir foreldra og kennara.  Forritunarleikar sem RÚV stendur fyrir er verkefni sem börn geta tekið þátt í, annað hvort eins síns liðs, með bekknum sínum eða skóla. Heimili verkefnisins verður á KrakkaRÚV, undir slóðinni: http://krakkaruv.is/kodinn/um_kodann .

Illugi Gunnarsson:

„Heimurinn hefur á seinustu öldum breyst hraðar en nokkru sinni fyrr í mannkynssögunni. Veröldin sem við þekkjum í dag er að mörgu leyti allt önnur en sú sem mörg okkar ólumst upp í. Mörg af þeim störfum sem við inntum af hendi fyrir 20 árum eru ekki lengur til, og það er ýmislegt sem bendir til þess að sum af þeim störfum sem við þekkjum í dag muni tilheyra sögubókunum eftir önnur 20 ár.

Hraðar breytingar á samfélaginu skapa sérstakar áskoranir fyrir menntakerfið. Hvernig eigum við að vera viss um að menntunin sem börnin okkar hljóta í dag nýtist þeim sem best þegar þau eru komin út á vinnumarkað? Hvernig eigum við að hjálpa þeim að þroskast þannig að þau séu búin undir þau tækifæri sem þeim mun standa til boða eftir áratug?

Við þessu eru engin einföld svör, en það er frábært að sjá atvinnulífið og hið opinbera taka höndum saman og sýna frumkvæði í því að reyna að skapa ungu kynslóðinni þau lífsskilyrði sem þau eiga skilið. Í öllu falli er fyrirsjáanlegt að efla þarf þekkingu og áhuga barna á forritun og tæknigreinum í skólakerfinu. Þetta verkefni er skref í þá átt.“

Nánari upplýsingar:

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, forstöðumaður mennta- og mannauðsmála SI, [email protected], s. 824 6106.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum