Hoppa yfir valmynd
12. október 2016 Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

Fundur með forstöðumönnum stofnana innanríkisráðuneytis

Frá forstöðumannafundi innanríkisráðuneytis. - mynd
Innanríkisráðuneytið efndi í gær til fundar með forstöðumönnum stofnana ráðuneytisins og sótti hann nokkuð á fimmta tug manna. Á dagskrá fundarins var að greina frá nýju skipuriti ráðuneytisins sem tekið hefur gildi og síðan að fjalla um fjármál og fjárlagagerð og fjármálaáætlun áranna 2017 til 2021.

Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri fór yfir nýtt skipurit ráðuneytisins sem tók gildi á dögunum. Fjallaði hún um helstu ástæður breytingarinnar og sagði þær meðal annars vera að eftir rúmlega 5 ára starfstíma ráðuneytisins væri eðlilegt að endurskoða skipulagið og að fram hefðu komið ábendingar um endurskoðun. Sjá skipurit ráðuneytisins.

Ingilín Kristmannsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu stefnumótunar og fjárlaga, fjallaði um fjármálin. Greindi hún frá fjármálaáætlun áranna 2017 til 2022, fjáraukalög fyrir 2016 sem nú eru til meðferðar á Alþingi, lokafjárlög 2015 og fjárlög næsta árs og hvernig undirbúningi þeirra væri háttað.

Þá fjallaði Marta Birna Baldursdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, um áætlanagerð stofnana til þriggja ára og að síðustu ræddi Ingilín Kristmannsdóttir um tímaásinn í verkefninu framundan. Í lok fundar voru umræður.

Frá forstöðumannafundi innanríkisráðuneytis.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum