Hoppa yfir valmynd
17. október 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 16/2016.  Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 14. október 2016

í máli nr. 16/2016:

Hansen verktaka ehf.

gegn

Ríkiskaupum,

Isavia ohf. og

ÁÁ verktökum ehf.

Með kæru mótekinni 26. september 2016 kæra Hansen verktakar ehf. útboð Ríkiskaupa (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) nr. 20397 auðkennt „Stækkun Suðurbyggingar FLE til norðurs 2016, SSN1606-9 - Múrverk“. Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um val á tilboði ÁÁ verktaka ehf. Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila auk þess sem krafist er málskostnaðar. Varnaraðili krefst þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað. ÁÁ verktakar ehf. gera sömu kröfu. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu varnaraðila um afléttingu sjálfkrafa banns við samningsgerð samkvæmt 1. mgr. 94. gr. a. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup, sbr. 12. gr. laga nr. 58/2013, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

            Mál þetta lýtur að fyrrgreindu útboði varnaraðila sem fram fór í ágúst sl. vegna stækkunar suðurbyggingar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar til norðurs, en verk þetta felst í endurinnréttingu byggingarinnar og viðbyggingar. Í grein 0.2.3 í útboðsgögnum kom fram að bjóðendur skyldu geta sýnt fram á reynslu af verki við nýbyggingu, endurgerð og/eða innréttingu byggingar, sambærilegri að stærð, flækjustigi og stjórnunarhlutverki og því sem boðið var út. Með sambærilegu verki að stærð væri átt við tilboðsverk, unnið á síðastliðnum tíu árum, þar sem upphæð samnings var a.m.k. 50% af tilboðsfjárhæð bjóðanda í hinu kærða útboði. Jafnframt kom fram að bjóðendur skyldu sýna fram á reynslu stjórnenda verkefnisins, af sambærilegu verkefni síðustu tíu árin hvað varðar stærð, tæknilegt umfang og verktíma. Tvö tilboð bárust í útboðinu, annars vegar frá kæranda og hins vegar frá ÁÁ verktökum ehf., sem voru lægstbjóðendur. Hinn 16. september sl. var kæranda tilkynnt að ákveðið hefði verið að taka tilboði ÁÁ verktaka ehf. í útboðinu.

Kröfur kæranda byggja á því að ÁÁ verktakar ehf. hafi ekki uppfyllt ákvæði greinar 0.2.3 í útboðsgögnum um reynslu og því hafi ekki mátt taka tilboði félagsins.  

Niðurstaða

Af þeim gögnum sem fylgdu tilboði ÁÁ verktaka ehf. verður ráðið að ÁÁ verktakar ehf. hafi tekið að sér verk við utanhússviðgerðir við Þórufell 2-20 sem verður að teljist sambærilegt að stærð, flækjustigi og stjórnunarhlutverki og hið útboðna verk í skilningi greinar 0.2.3 í útboðsgögnum. Þá verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að stjórnendur félagsins hafi yfir að ráða tilskilinni reynslu af stjórnun sambærilegra verkefna að stærð, tæknilegu umfangi og verktíma síðastliðin tíu ár. Verður því að leggja til grundvallar, eins og mál þetta liggur fyrir nú, að ÁÁ verktakar ehf. hafi uppfyllt kröfur greinar 0.2.3 í útboðsgögnum um tæknilegt hæfi og heimilt hafi verið að taka tilboði þess. Því hefur kærandi ekki leitt verulegar líkur að því að varnaraðili hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup við hið kærða útboð. Verður því að aflétta þeirri stöðvun samningsgerðar sem komst á með kæru í máli þessu, sbr. 2. mgr. 94. gr. a. laga um opinber innkaup, sbr. 12. gr. laga nr. 58/2013.

Ákvörðunarorð:

Aflétt er stöðvun samningsgerðar vegna útboðs varnaraðila, Ríkiskaupa, nr. 20397 auðkennt „Stækkun Suðurbyggingar FLE til norðurs 2016, SSN1606-9 - Múrverk“.

                                                                                    Reykjavík, 14. október 2016

                                                                                    Skúli Magnússon

                                                                                    Ásgerður Ragnarsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum