Hoppa yfir valmynd
18. október 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Auglýst eftir þátttakendum í tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma

Velferðarráðuneytið - mynd

Velferðarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá vinnustöðum hjá ríkinu um þátttöku í tilraunaverkefni ríkisins og BSRB um styttingu vinnutíma og eru vinnustaðir um allt land hvattir til þátttöku.

Markmið verkefnisins er að kanna hvort stytting vinnuviku leiði til gagnkvæms ávinnings starfsmanna og viðkomandi vinnustaða.

Valdir verða fjórir vinnustaðir þar sem vinnustundum verður fækkað úr 40 á viku í 36 stundir án þess að til launaskerðingar komi. Stefnt er að því að tveir þeirra séu vaktavinnustaðir.

Tilraun um styttingu vinnutíma mun standa yfir í eitt ár, frá 1. febrúar 2017 til 1. febrúar 2018, á þeim vinnustöðum sem taka þátt.

Umsóknarfrestur rennur út 7. nóvember nk.

Við mat á umsóknum verða meðal annars eftirfarandi viðmið höfð til hliðsjónar:

  • að stöðugildi á vinnustaðnum séu 20 eða fleiri

  • a.m.k. 30% starfsmanna á vinnustaðnum séu í aðildarfélögum BSRB

  • fjöldi svipaðra starfa á vinnustaðnum

  • vinnufyrirkomulag - vaktavinna eða dagvinna

  • að meirihluti starfsmanna sé í 70–100% starfshlutfalli

Óskað er eftir að í umsóknum komi fram hugmyndir um hvernig megi útfæra styttingu vinnutíma á viðkomandi vinnustað. Einnig skal koma fram hvernig megi meta áhrif styttingu vinnutíma á vellíðan starfsfólks, starfsanda og þá þjónustu sem vinnustaðurinn veitir með tilliti til gæða og hagkvæmni.

Þátttaka stærri vinnustaða getur afmarkast við deild eða svið innan vinnustaðarins að teknu tilliti til ofangreindra viðmiða.

Starfshópur um tilraunaverkefnið er skipaður fulltrúum velferðarráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og BSRB. Hlutverk hópsins er meðal annars að velja vinnustaði til þátttöku í tilraunaverkefninu og meta árangur þess. Starfshópurinn mun skila lokaskýrslu um verkefnið eigi síðar en í lok september 2018.

Starfsmaður verkefnisins er Ása Guðbjörg Ásgeirsdóttir sérfræðingur hjá velferðarráðuneytinu. Nánari upplýsingar fást hjá henni í síma 545 8100. Umsóknum skal skilað á netfangið [email protected] merkt tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum