Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir skipaður formaður samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga
Í nýsamþykktum búvörulögum er kveðið á um að skipaður verði samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga. Í lögunum er jafnframt kveðið á um tryggja skuli aðkomu afurðastöðva, atvinnulífs, bænda, launþega og neytenda að endurskoðuninni og skal vinnu hópsins lokið eigi síðar en á árinu 2019.
Í samræmi við þetta hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra óskað eftir að eftirfarandi aðilar tilnefni fulltrúa í 7 manna samráðshóp, þ.e. Alþýðusamband Íslands/BSRB, Bændasamtök Íslands (2 fulltrúar), Neytendasamtökin, Samtök afurðastöðva, Samtök atvinnulífsins.
Formaður samráðshópsins verður Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir forstöðumaður rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri og er hún skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.