Hoppa yfir valmynd
26. október 2016 Matvælaráðuneytið

Áframhaldandi samstarf stjórnvalda og fyrirtækja um öfluga íslenska markaðssókn í Norður-Ameríku

Iceland Naturally - mynd

 Í dag var undirritaður nýr samningur um markaðs- og kynningarverkefni í Norður–Ameríku undir heitinu Iceland Naturally. Auk atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins eru Icelandic Group, Icelandair, Bláa lónið, ISAVIA, Reyka Vodka, Icelandic Glacial Water, Icelandic Provisions, Ölgerðin Egill Skallagrímsson, Reykjavíkurborg, Landsvirkjun, Íslandsstofa, forsætisráðuneytið og utanríkisráðuneytið aðilar að samningnum.  

Markmiðið með Iceland Naturally  er að styrkja ímynd Íslands og styðja við íslensk vörumerki á mörkuðum í Norður-Ameríku með því að auka á sýnileika íslenskrar vöru og þjónustu og hefur verkefnið verið starfrækt frá aldamótum. 

Kannanir sýna að mikill árangur hefur náðst á undanförnum árum og er samningurinn sem skrifað var undir í dag mikilvægur áfangi í að styrkja enn frekar útflutning á íslenskum vörum til Norður-Ameríku og auka frá Bandaríkjunum og Kanada til Íslands.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum