Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) - leið til sjálfstæðs lífs

Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónusta sem byggist á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Hugmyndafræðin gerir skýrar kröfur um að notandi aðstoðarinnar ráði því hvernig staðið er að framkvæmd hennar. NPA er því á margan hátt umbreyting á framkvæmd og skipulagi innan velferðarþjónustunnar. Þessi breyting gerir miklar kröfur til notenda, aðstoðarfólks og þeirra sem annast umsýslu með framkvæmd aðstoðarinnar.Frá því 2011 hefur samstarfsverkefni um NPA verið við lýði. Sérstök verkefnisstjórn hefur starfað og fjallað um hvernig best verði staðið að framkvæmd NPA til framtíðar. Nú er komið að kaflaskilum og af því tilefni er boðað til málþings þar sem NPA verður rýnd frá mismunandi sjónarhornum. Þess er vænst að málþingið og niðurstöður þess geti orðið mikilvægt vegarnesti fyrir stjórnvöld þegar næstu skref við framtíðaruppbyggingu NPA verða stigin hér á landi.

Málþingið er haldið á vegum velferðarráðuneytisins í samvinnu við Verkefnisstjórn um NPA.Aðgangur að málþinginu er ókeypis og öllum opinn en þátttakendur þurfa að skrá sig og fer skráningin fram á vef ráðuneytisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum