Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2016 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ný reglugerð um gæði eldsneytis

Reglugerðin fjallar um fljótandi eldsneyti

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um gæði eldsneytis, sem felur í sér breytingar á reglum um fljótandi eldsneyti.

Markmið reglugerðarinnar er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í tengslum við eldsneyti eða orku sem afhent er hér á landi og hugsanlegum skaðlegum áhrifum eldsneytis á heilsu fólks og umhverfi.

Í reglugerðinni eru gerðar ákveðnar kröfur til bensíns og dísileldsneytis sem er markaðssett hérlendis. Einnig kveður reglugerðin á um skyldu birgja til að skila inn skýrslum um styrk gróðurhúsalofttegunda úr eldsneyti og orku sem afhent hefur verið hér á landi og að draga í áföngum úr losun gróðurhúsalofttegunda úr eldsneyti og orku, um allt að 10% fram til 2020.

Með reglugerðinni eru innleidd ákvæði tilskipunar Evrópusambandsins um gæði bensíns og dísileldsneytis. Reglugerðin kemur í stað reglugerðar nr. 560/2007 um fljótandi eldsneyti.

Reglugerð nr 960/2016 um gæði eldsneytis

Merki markmiðs númer 7, sjálfbær orkaMerki markmiðs númer 12, ábyrg neysla

Efni þessarar fréttar tengist Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðnna um sjálfbæra þróun, markmiðum númer 7 um sjálfbæra orku og 12 um ábyrga neyslu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum