Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2016 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.

Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópubandalagsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 1004/2016 um úthlutina, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópubandalagsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2017:

Vakin er athygli á því að úthlutunartímabil tollkvóta samkvæmt auglýsingunni eru sex mánuðir í stað 12 mánaða eins og verið hefur. Vörumagn er því helmingað. Með breytingunni er þess vænst að innflutningur dreifist með jafnari hætti og verði í betra samræmi við þarfir íslensks markaðar. Ennfremur munu þeir sem fá ekki úthlutað að þessu sinni eiga að nýju möguleika á úthlutun eftir sex mánuði í stað 12 mánaða, þegar samskonar úthlutun á sér stað.

Tafla I

Vöruliður: Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
kg % kr./kg
0202 Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst 01.01. - 30.06.17 50.000 0 0
0203 Svínakjöt, fryst 01.01. - 30.06.17 100.000 0 0
0207 Kjöt af alifuglum, fryst 01.01. - 30.06.17 100.000 0 0
0208.9003 Rjúpur, frystar 01.01. - 30.06.17 ótilgreint 0 0
ex 0210 Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**) 01.01. - 30.06.17 25.000 0 0
ex 0406 Ostur og ystingur (**) 01.01. - 30.06.17 10.000 0 0
0406 Ostur og ystingur 01.01. - 30.06.17 40.000 0 0
1601 Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum 01.01. - 30.06.17 25.000 0 0
1602 Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum 01.01. - 30.06.17 25.000 0 0

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 448/2012.

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 föstudaginn 2. desember 2016.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum