Ungir vísindamenn verðlaunaðir
Fjórir ungir vísindamenn voru verðlaunaðir fyrir rannsóknarverkefni sín á 18. ráðstefnu Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum.
Verðlaunin voru afhent við slit ráðstefnunnar á Háskólatorgi þann 4. janúar síðastliðinn.
Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, doktorsnemi í líf- og læknavísindum við Læknadeild, hlaut verðlaun mennta- og menningarmálaráðuneytisins, til ungs og efnilegs vísindamanns, fyrir rannsóknir sem sýna fram á að nota megi útrunnar og smithreinsaðar blóðflögur til ræktunar á stofnfrumum í meðferðarskyni.
Ása Bryndís Guðmundsdóttir, doktorsnemi í lyfjafræði við Lyfjafræðideild, hlaut verðlaun úr Þorkelssjóði, til ungs námsmanns fyrir verkefni á sviði lyfja- og eiturefnafræði, fyrir verkefnið „Effects of Exopolysaccharides from Cyanobacterium aponinum obtained from the Blue Lagoon on stimulated T cells“.
Hallur Reynissson, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Læknadeild, hlaut hvatningarverðlaun Jóhanns Axelssonar, sem veitt eru af Félagi íslenskra lífeðlisfræðinga, til ungs og efnilegs vísindamanns fyrir verkefni á sviði lífeðlisfræði eða skyldra greina, fyrir verkefnið „The Loss of A-Type Current in the Mitf Mutant Olfactory Bulb Projection Neurons“.
Samúel Sigurðsson, doktorsnemi í
læknavísindum við Læknadeild, hlaut verðlaun velferðarráðuneytisins, til ungs
og efnilegs vísindamanns fyrir verkefni á sviði forvarna eða heilsueflingar,
fyrir rannsóknir tengdar bólusetningum fyrir pneumókokkum í börnum á Íslandi.
Frá vinstri: Ása Bryndís Guðmundsdóttir, Hallur Reynisson, Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch og Samúel Sigurðsson.