Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2017 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Breytingar á reglugerð um innritun nemenda í framhaldsskóla

Framhaldsskólum er nú heimilt að taka einnig mið af viðbótargögnum þegar velja þarf úr stórum hópi umsækjenda.

Meginefni reglugerðarinnar er að þegar framhaldsskólar þurfa að velja úr stórum hópi umsækjanda um skólavist, er þeim heimilt að taka mið af fleiri gögnum en lokaeinkunnum úr grunnskóla. Þeim er einnig heimilt að taka mið af viðbótargögnum sem nemandi kýs að senda með umsókn sinni, eins og staðfestar upplýsingar um þátttöku og árangur í félagsstarfi, öðru námi, keppnum af ýmsu tagi, svo sem íþróttum, listum, tungumálum og raungreinum og niðurstöður samræmdra könnunarprófa. Þessi breyting kemur fram í reglugerð nr. 1199/2016 um breytingar á reglugerð nr. 1150/2008 um innritun nemenda í framhaldsskóla (sem áður var breytt með reglugerð nr. 204/2012). Sjá nánar um innritun nemenda í framhaldsskóla á vef Menntamálastofnunar.

------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um innritun nemenda í framhaldsskóla, nr. 1150/2008.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

a. Í stað orðanna „32. og 33. gr.“ í 1. mgr. 2. gr. kemur: 32. gr. a og 33. gr. b.

b. 2. málsl. 3. mgr. fellur brott.

c. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

Í þeim tilvikum þegar velja þarf úr stórum hópi umsækjanda er framhaldsskóla einnig heimilt að taka mið af viðbótargögnum sem nemandi kýs að senda með umsókn sinni, eins og staðfestar upplýsingar um þátttöku og árangur í félagsstarfi, öðru námi, keppnum af ýmsu tagi, svo sem íþróttum, listum, tungumálum og raungreinum og niðurstöður sam­ræmdra könnunarprófa.

2. gr.

2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Við mat á umsóknum ber skólameistara að taka mið af kröfum skólans um undirbúning, sbr. 2. mgr. 2. gr., 3. gr., almennum viðmiðum í skólanámskrá, ákvæðum 4. gr. um skólasamninga og gæta að öðru leyti samræmis og jafnræðis við mat á sambærilegum umsóknum.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 32. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 8. desember 2016.

                                                                        Illugi Gunnarsson                                                                                                        

                                                                                                                                                         Ásta Magnúsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum