Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Gylfi Ólafsson ráðinn aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra

Gylfi Ólafsson, aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra.

Gylfi Ólafsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Benedikts Jóhannessonar, fjármála- og efnahagsráðherra.

Gylfi er 33 ára heilsuhagfræðingur. Hann lauk B.Ed. gráðu sem grunnskólakennari frá Háskólanum á Akureyri, M.Sc. í hagfræði frá Stokkhólmsháskóla og lagði stund á doktorsnám í heilsuhagfræði við Karolinska í Stokkhólmi frá 2013.

Frá árinu 2013 hefur Gylfi verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi í heilsuhagfræði á Íslandi. Hann hefur verið stundakennari við Háskóla Íslands frá 2014. Árin 2012-2016 var Gylfi ráðgjafi í heilsuhagfræði hjá Quantify Research í Stokkhólmi. Hann stofnaði og rak nýsköpunarfyrirtækið Vía í skordýraeldi í Bolungarvík frá 2013-2016. Gylfi var dagskrárgerðarmaður og fréttamaður hjá RÚV 2009-2013.

Gylfi var oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi í Alþingiskosningum 2016. Hann er giftur Tinnu Ólafsdóttur og saman eiga þau eina dóttur.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum