Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2017 Matvælaráðuneytið

Páll Rafnar ráðinn aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar

Páll Rafnar Þorsteinsson
Páll Rafnar Þorsteinsson

Páll Rafnar Þorsteinsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Páll Rafnar er með doktorspróf í heimspeki frá Cambridge háskóla og fjallaði lokaritgerð hans um lagahugtakið (nomos) í stjórnspeki Aristótelesar. Ransóknarsvið Páls Rafnars hefur aðallega snúið að hugmyndum - bæði klassískum og nútímalegum - um sanngirni, siðvit og réttlæti.

Páll Rafnar er auk þess með meistaragráðu í stjórnmálaheimspeki frá London School of Economics og BA gráðu í heimspeki og grísku frá Háskóla Íslands.

Páll Rafnar mun láta af störfum sem forseti Félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst þar sem hann hefur starfað undanfarin ár við kennslu og stjórnun. Páll starfaði þar áður sem ráðgjafi hjá almannatengslafyrirtækinu KOM. Þá hefur hann unnið að rannsóknum og við ritstörf á sviði alþjóðastjórnmála og stjórnmálaheimspeki fyrir hugveitur í Bretlandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum