Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2017 Matvælaráðuneytið

Sameiginleg fréttatilkynning sjávarútvegsráðherra Íslands og Færeyja

Høgni Hoydal og Þorgerður Katrín
Høgni Hoydal og Þorgerður Katrín

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Høgni Hoydal sjávarútvegsráðherra Færeyja sömdu í gær um fiskveiðiheimildir Færeyinga innan íslenskrar lögsögu fyrir næsta ár. Einnig var samið um gagnkvæman aðgang að veiðum í lögsögu beggja. Heimildir Færeyinga verða þær sömu á næsta ári og þær eru í ár eða um 5.600 tonn, en hámark fyrir þorskveiði hækkar úr 1.900 tonnum í 2.400 tonn. 

Samið var um, eins og áður, að Færeyingar geti veitt loðnu við Ísland sem nemur 5% af ákvörðuðum heildarafla í loðnu á vertíðinni en þó að hámarki 30.000 tonn. Áfram eru takmarkanir á heimildum Færeyinga til að verka loðnu um borð eða landa í Færeyjum til manneldis. Þó er sú rýmkun að heimildin til manneldisvinnslu eftir 15. febrúar fer ekki undir 4.000 tonn, þótt það magn nemi hærra hlutfalli en 1/3 af loðnukvótanum.

Engar breytingar voru gerðar á heimildum Íslands til að veiða 1.300 tonn af makríl og 2.000 tonn af Hjaltlandssíld í færeyskri lögsögu, né á gagnkvæmum aðgangi þjóðanna til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld í lögsögum hvors annars.

Ráðherrarnir voru sammála um að halda áfram viðræðum sem hófust í fyrra um samspil Højvikursamningsins, um viðskipti milli landanna, við samninga á sviði fiskveiða og stefna að því að ljúka þeim viðræðum innan hálfs árs.

Að lokum lýstu báðir ráðherrarnir ánægju sinni með þann góða anda sem ríkti á fundinum sem gefur góð fyrirheit um að samstarf landanna muni aukast á næstu árum báðum til hagsbóta.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum