Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2017 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra ræðir málefni norðurslóða í Tromsø

Utanríkisráðherra á fundi um málefni norðurslóða í Tromsø - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra gerði aukið vægi norðurslóða á alþjóðavettvangi, sjálfbærni á svæðinu og málefni hafsins að umtalsefni í ræðu sinni í morgun á Arctic Frontiers ráðstefnunni, sem haldin er í Tromsø í Noregi. Þá tók utanríkisráðherra þátt í pallborðsumræðum um málefni norðurslóða þar sem forsætisráðherrar Noregs og Finnlands og sendiherra Rússlands í málefnum norðurslóða voru meðal þátttakenda. Umræðunni stýrði fréttamaðurinn Stephen Sackur frá BBC sjónvarpsstöðinni. "Samvinna ríkja á norðurslóðum er til fyrirmyndar. Við erum sammála um að hafa sjálfbærni að leiðarljósi í allri stefnumörkun á svæðinu og sporna við neikvæðum áhrifum loftslagsbreytinga. Þá hafa málefni hafsins á norðurslóðum fengið aukinn sess í umræðunni sem er vel, enda hagsmunir okkar, sem fiskveiðiþjóð, þar mjög ríkir, " segir Guðlaugur Þór.

Utanríkisráðherra fundaði ennfremur með Margot Wallström, utanríkisráðherra Svíþjóðar, og ræddu ráðherrarnir meðal annars norrænt samstarf, Brexit og stöðu mála í Evrópu. Þá fundaði ráðherra með Frank Bakke-Jensen, Evrópumálaráðherra Noregs, um Brexit og EES samstarfið. "Ég hef sagt að fyrirhuguð útganga Bretlands úr Evrópusambandinu og hagsmunir Íslands þar að lútandi sé forgangsmál í utanríkisstefnunni, og því er mikilvægt að ráðgast og skiptast á upplýsingum við norræna samráðherra," segir Guðlaugur Þór sem heldur til Danmerkur síðar í dag og tekur þar þátt í opinberri heimsókn forseta Íslands.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd
 Heimsmarkmið SÞ: 13 Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum