Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2017 Matvælaráðuneytið

Ólafur Teitur Guðnason ráðinn aðstoðarmaður ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Ólafur Teitur
Ólafur Teitur

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ráðið Ólaf Teit Guðnason sem aðstoðarmann sinn. 

Ólafur Teitur var fréttamaður árin 1998 til 2007, fyrst hjá RÚV, þá DV og loks Viðskiptablaðinu. Hann var fjölmiðlafulltrúi Straums-Burðaráss fjárfestingabanka árið 2008 en var undir lok þess árs ráðinn framkvæmdastjóri samskiptasviðs Rio Tinto á Íslandi hf., sem rekur álverið í Straumsvík, og hefur starfað þar síðan.

Meðal annarra verkefna má nefna að hann var í stjórn Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð, frá stofnun 2011 og til ársins 2015. Hann hafði ásamt fleirum umsjón með Sunnudagsþættinum á Skjá einum árin 2004-2006, þýddi á íslensku ævisögu Maós eftir Jung Chang og Jon Halliday sem kom út árið 2007, ritstýrði ritgerðasafni um alla forsætisráðherra Íslands sem kom út árið 2004 og gerði níu útvarpsþætti um sögu hljómsveitarinnar Pink Floyd fyrir Rás 2. Þá hefur hann haldið erindi í námskeiðum hjá Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.

Ólafur Teitur er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og með BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands en tók hluta námsins við Albert-Ludwigs háskólann í Freiburg í Þýskalandi. 

Ólafur Teitur er fæddur 1973, eiginkona hans er Engilbjört Auðunsdóttir viðskiptafræðingur og eiga þau tvo syni.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum