Hoppa yfir valmynd
27. janúar 2017 Matvælaráðuneytið

Til umsagnar: Reglugerð um velferð dýra við flutning

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið leggur fram til kynningar og umsagnar drög að reglugerð um velferð dýra við flutning. Frestur til að skila umsögnum er til 16. febrúar 2017. 

Samkvæmt lögum um velferð dýra skal ráðherra setja í reglugerð ákvæði um flutning og rekstur dýra og um leyfi fyrir flutningstækjum, öryggisbúnaði og merkingu þeirra. Þá skal ráðherra setja fyrirmæli er tryggja velferð búfjár í tengslum við flutninga. Einnig skal ráðherra setja nánari ákvæði um flutning búfjár frá brottfararstað til áfangastaðar, þ.m.t. um hleðslu í rými, umfermingu, affermingu, hámarksflutningstíma og um þær kröfur sem eru gerðar um flutningstæki sem flytja búfé, þ.m.t. um hleðslubúnað þeirra. Ráðherra er einnig heimilt að setja reglur um flutningsskilríki flutningsaðila, skyldur gæsluaðila með búfé, sérstök leyfi flutningsaðila sem veitt verða af Matvælastofnun og reglur til að skylda aðila sem vinna við flutning á búfé til að sækja námskeið þar sem m.a. er fjallað um velferð dýra og dýrasjúkdóma. 

Drög reglugerðar um velferð dýra í flutningi hafa verið til vinnslu hjá ráðuneytinu í nokkurn tíma og hafa margir aðilar komið að vinnslu reglugerðarinnar og veitt umsögn um drög hennar á fyrri stigum, má þar nefna: Bændasamtök Íslands, Dýraverndarsamband Íslands, Dýralæknafélag Íslands, Félag hrossabænda, Svínaræktarfélag Íslands, Landssamtök sauðfjárbænda, Geitfjárræktarfélag Íslands, Samband íslenskra loðdýrabænda, Landssamband kúabænda, Félag kjúklingabænda, Félag eggjaframleiðenda, Landssamband kanínubænda, Samtök iðnaðarins, Landssamtök sláturleyfishafa, Matvælastofnun, Samgöngustofa, Innanríkisráðuneytið og Icelandair Cargo. Drög reglugerðarinnar fela í sér mikil nýmæli frá núgildandi reglugerð um meðferð búfjár við rekstur og flutning með vögnum, skipum og flugvélum nr. 127/1958, með síðari breytingum.

Drög reglugerðarinnar taka mið af reglugerð ESB nr. 1/2005 um velferð dýra við flutning og sambærilegra reglna í Noregi. Þrátt fyrir að horft hafi verið til ofangreindra reglna taka drög reglugerðarinnar mið af íslenskum aðstæðum með tilliti til vegalengda, veðurfars, sérreglna um inn- og útflutning lifandi dýra og öðrum atriðum sem skipta máli hér á landi.

Reglugerðin er sett er á grundvelli laga um velferð dýra og gildir um flutninga allra dýra. Sérstök athygli er vakin á því að í reglugerðinni er gerður greinamunur annars vegar á flutningi umráðamanns á dýrum sínum á eigin flutningatæki, sé um að ræða hefðbundna árlega flutninga til eða frá beitilandi og flutning á 15 dýrum eða færri og hins vegar flutningum í atvinnuskyni.

Athugasemdir og ábendingar um reglugerðina óskast sendar á netfangið [email protected] merkt "Reglugerð um velferð dýra í flutningi." Frestur til að skila umsögnum er til 16. febrúar 2017.


 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum