Hoppa yfir valmynd
27. janúar 2017 Heilbrigðisráðuneytið

Upplýsingar varðandi lokun hjúkrunarheimilisins Kumbaravogs

Vel gengur að finna íbúum Kumbaravogs samastað en sem kunnugt er verður heimilinu lokað 31. mars næstkomandi. Af 29 íbúum eru átta þegar farnir af heimilinu og níu til viðbótar fara á allra næstu dögum. Þeir tólf íbúar sem eftir eru fara eftir því sem rými losna á þeim heimilum þar sem þeir hafa óskað eftir að setjast að.

Heilbrigðisráðherra ákvað í lok desember á liðnu ári að loka hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi, í samræmi við tillögu Embættis landlæknis sem taldi rekstur hjúkrunarheimilisins ekki uppfylla lágmarkskröfur um mönnun, húsnæði, aðstöðu, tæki og búnað til reksturs heilbrigðisþjónustu og að öryggi íbúanna væri stefnt í hættu. Eftir ítrekaðar athugasemdir og kröfur um úrbætur sem ekki var brugðist við með viðunandi hætti taldi Embætti landlæknis fullreynt að knýja fram úrbætur og niðurstaðan varð sú að loka heimilinu.

Rekstraraðili Kumbaravogs fær greidd full daggjöld fyrir öll 29 hjúkrunarrýmin allt til þess dags sem heimilinu verður lokað, óháð brottflutningi íbúanna. Þetta er gert til þess að skapa rekstraraðilanum svigrúm til að standa við skuldbindingar sínar varðandir reksturinn, s.s. laun starfsfólks o.fl.

Heilbrigðisráðherra og framkvæmdastjóri sveitarfélagsins Árborgar undirrituðu í byrjun september sl. samning um byggingu 50 rýma hjúkrunarheimilis sem rísa mun á lóð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Samkvæmt áætlun velferðarráðuneytisins er miðað við að 35 þessara rýma leysi af hólmi eldri hjúkrunarrými en 15 þeirra mæti aukinni þörf. Í þessari áætlun ráðuneytisins (sjá svar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á Alþingi um heimilismenn á hjúkrunarheimilum) var meðal annars reiknað með því að rekstri hjúkrunarheimilisins á Kumbaravogi yrði hætt á næstu misserum, enda virtist þá orðið ljóst að rekstraraðilarnir teldu sér ekki fært að reka heimilið í samræmi við kröfur þar að lútandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum