Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Velferðarráðuneytið tekur til starfa í Skógarhlíð 31. janúar

Öll starfsemi velferðarráðuneytisins hefur verið flutt úr Hafnarhúsinu við Tryggvagötu í nýtt aðsetur við Skógarhlíð 6 þar sem áður var embætti sýslumannsins í Reykjavík. Ráðuneytið tekur til starfa á nýjum stað þriðjudaginn 31. janúar og opnar afgreiðslan að venju kl. 8:30. Ráðuneytið verður lokað mánudaginn 30. janúar en ef erindið er brýnt er hægt að hringja í síma 545-8100.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum