Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-nóvember 2016

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar - nóvember 2016 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Handbært fé frá rekstri batnaði verulega á milli ára og var jákvætt um 61,6 ma.kr. samanborið við neikvætt handbært fé upp á 17,9 ma.kr. 2015. Þetta skýrist að stærstum hluta með tekjufærðum stöðuleikaframlögum á árinu 2016 sem námu 68 ma.kr á tímabilinu. Handbært fé lækkar um 97,6 ma.kr. samanborið við lækkun um 114,2 ma.kr. á árinu 2015, afborganir lána á tímabilinu námu 206,4 ma.kr.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum