Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stórbætt aðgengi almennings að fjárhagsupplýsingum ríkisins á nýjum vef

Ríkisstjórnin hyggst stórbæta aðgengi almennings að fjárhagsupplýsingum ríkisins. Mikilvægt skref í þessa veru verður stigið um miðjan mars þegar vefurinn opnirreikningar.is verður opnaður. Þar verður innan fárra mánaða hægt að nálgast greiðsluupplýsingar um tvö hundrað stofnana.

Á vefnum munu árlega birtast á bilinu 300-400 þúsund reikningar vegna kaupa ríkisins á vörum og þjónustu. Hægt verður að leita að reikningum á vefnum með ýmsum leiðum, t.d. út frá stofnunum eða tegund kostnaðar. Á vefnum verða ennfremur birt skönnuð fylgiskjöl með reikningum, en með því gengur Ísland lengra en önnur ríki sem hafa unnið svipuð verkefni.

Sérstaklega hefur verið hugað að öryggismálum og sjónarmiðum um persónuvernd og sérstakar síur koma í veg fyrir að viðkvæmar persónuupplýsingar birtist, svo sem vegna læknisheimsókna, bóta eða launa.

Vinna við verkefnið hófst á síðasta ári og er henni að mestu lokið.

Í fyrstu verða upplýsingar frá aðalskrifstofum ráðuneyta aðgengilegar á nýja vefnum. Í næstu áföngum verða stofnanir í A-hluta ríkissjóðs hluti af kerfinu. Stefnt er að því að verkefnið verði að fullu komið til framkvæmda um áramót.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum