Hoppa yfir valmynd
15. febrúar 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Nýr skrifstofustjóri félagsþjónustu í velferðarráðuneytinu

Ákvörðun hefur verið tekin um að skipa Ellý Öldu Þorsteinsdóttur skrifstofustjóra á skrifstofu félagsþjónustu í velferðarráðuneytinu. Ráðgefandi hæfnisnefnd mat Ellý Öldu hæfasta úr hópi 21 umsækjanda um starfið. Ellý Alda tekur við starfinu af Bolla Þór Bollasyni sem gegnt hefur starfi skrifstofustjóra í velferðarráðuneytinu frá stofnun þess 1. janúar 2011.

Ellý Alda lauk starfsréttindanámi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands árið 1988 og meistaranámi í stjórnun frá Háskólanum í Kent árið 1991. Hún hefur allan starfsaldur sinn starfað við málefni félagsþjónustu hjá Reykjavíkurborg þar sem hún hóf störf árið 1988 sem félagsráðgjafi í stuðnings- og barnaverndarmálum á Félagsmálastofnun. Frá árinu 2014 hefur Ellý Alda verið skrifstofustjóri á skrifstofu sviðsstjóra á velferðarsviði Reykjavíkurborgar, en áður var hún skrifstofustjóri velferðarþjónustu (2005 – 2013), framkvæmdastjóri ráðgjafarsviðs (2000 – 2005) og yfirmaður fjölskyldudeildar sem og framkvæmdastjóri Barnaverndarnefndar Reykjavíkur (1995 – 2000), forstöðumaður hverfaskrifstofu (1991 – 1995) og deildarstjóri meðferðardeildar þar sem hún sinnti stuðnings- og barnaverndarmálum (1990  – 1991).

Í mati hæfnisnefndar segir að það sé afgerandi styrkleiki Ellýjar Öldu hve djúpa og breiða þekkingu hún hefur á þeim málaflokkum sem falla undir skrifstofu félagsþjónustu í velferðarráðuneytinu. Starfsferill hennar sé glæsilegur og einkennist af stigvaxandi stjórnunarábyrgð sem spanni samtals 26 ár. Hún hafi mikla og fjölbreytta þekkingu og reynslu af opinberri stjórnsýslu og sterka faglega sýn á málefni félagsþjónustu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum