Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2017 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2016

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2016.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem veitt er árlega. Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru:

  • 2015 - ÁTVR
  • 2014 - Landspítalinn
  • 2013 - Kaffitár 
  • 2012 - Íslenskir fjallaleiðsögumenn
  • 2011 - Náttúran.is
  • 2010 - Farfuglaheimilin í Reykjavík
  • 2009 - Oddi  
  • 2008 - Íslenska Gámafélagið.
  • 2007 - Sólarræsting.
  • 2006 - Bechtel.
  • 2005 - Línuhönnun.
  • 2004 - Orkuveita Reykjavíkur.
  • 2003 - Hópbílar.
  • 2002 - Árvakur.
  • 2000 - Íslenska álfélagið.
  • 1999 - Borgarplast.
  • 1998 - Fiskverksmiðja Haraldar Böðvarssonar á Akranesi.
  • 1997 - Olíufélagið.
  • 1996 - Fiskverkun KEA í Hrísey.
  • 1995 - Prentsmiðja Morgunblaðsins.
  • 1994 - Umbúðamiðstöðin, Gámaþjónustan og Kjötverksmiðjan Goði.

Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en föstudaginn 17. mars n.k. merktar ,,Kuðungurinn” á póstfangið [email protected] eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum