Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2017 Matvælaráðuneytið

Aukið vægi ferðaþjónustunnar innan atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins

ANR Skipurit 23. feb. 2017
ANR Skipurit 23. feb. 2017

Í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla og auka vægi ferðaþjónustunnar í stjórnsýslunni verður sett á fót skrifstofa innan atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem eingöngu mun sjá um málefni ferðaþjónustunnar. 

Í upphafi verða fimm starfsmenn á nýrri skrifstofu ferðamála en reiknað er með að á næstu misserum geti þeim fjölgað um einn til tvo til að styrkja starfið enn frekar. Skrifstofustjóri skrifstofu ferðamála verður Sigrún Brynja Einarsdóttir.

Þessi skipulagsbreyting byggir á breyttri forgangsröðun í starfsemi þeirra skrifstofa ráðuneytisins sem heyra undir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur ferðamála, iðnaðar og nýsköpunarráðherra. Breytingin kallar því ekki á fjölgun starfsmanna utan þeirra sem hugsanlega verða ráðnir í framtíðinni og getið er um að framan.

Þórdís Kolbrún ferðamála, iðnaðar og nýsköpunarráðherra: „Frá árinu 2010 hefur fjöldi erlendra ferðamanna ríflega fjórfaldast og ferðaþjónustan er nú ein allra mikilvægasta stoðin undir íslensku efnahagslífi. Tækifæri í íslenskri ferðaþjónustu eru mikil en hröðum vexti fylgja stórar áskoranir. Hlutverk stjórnvalda er að treysta stefnumótun, regluverk og uppbyggingu innviða  svo ferðaþjónustan geti haldið áfram að blómstra í sátt við umhverfi, náttúru og samfélag.“


Nýtt skipulag atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins tekur gildi 1. mars  

ANR Skipurit 23. feb. 2017

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum