Hoppa yfir valmynd
8. mars 2017

Utanríkisráðherra bregst við neyðinni í Suður-Súdan og norðaustur Nígeríu

SsudanGuðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið að fela Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) að ráðstafa 40 milljónum íslenskra króna, annars vegar til flóttafólks frá Suður-Súdan sem flúið hefur yfir landamærin til Úganda, og hins vegar til vannærðra íbúa Borno og Yobe héraðanna í norðaustur Nígeríu þar sem hryðjuverkasamtökin Boko Haram hafa tvístrað samfélögum. Af þessum 40 milljónum verður 23 milljónum varið til stuðnings flóttafólki frá Suður-Súdan og 17 milljónir fara til norðaustur Nígeríu.


Flestir flóttamenn í Úganda

Ekkert lát er á stríðsátökunum í Suður-Súdan sem hófust árið 2013 og hafa leitt af sér flóðbylgju flóttamanna til nágrannaríkja, einkum Úganda, sem er eitt af þremur samstarfsríkjum Íslendinga í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Yfir landamærin hafa farið yfir 700 þúsund flóttamenn frá upphafi átakanna, þar af rúmlega hálf milljón frá því átökin hörðnuðu um mitt síðasta ár. Úganda er samkvæmt nýjustu tölum orðið það land í Afríku sem hefur tekið á móti flestum flóttamönnum í álfunni. Fjárskortur hamlar mannúðaraðstoð í flóttamannasamfélögunum í norðurhluta Úganda og því hefur utanríkisráðherra ákveðið að bregðast við neyðinni með sérstakri fjárveitingu til WFP í þágu flóttafólksins.

Hörmungar af völdum Boko Haram 
Í norðurhluta Nígeríu hefur ríkt vargöld um langt skeið vegna vígasveita Boko Haram sem hafa hrakið á þriðju milljón manna á flótta. WFP telur að 4,5 milljónir manna hafi þörf fyrir matvælaaðstoð, þar af 2 milljónir íbúa í héruðunum Borno og Yobe sem lengi voru óaðgengileg hjálparstarfsfólki. Framlag Íslands til mannúðaraðstoðar í þessum heimshluta verður fyrst og fremst varið til að styðja við konur og börn í þessum héruðum þar sem hungursneyð er að óbreyttu yfirvofandi.


Uganda now home to a million refugees and asylum-seekers/ WVI
UN Relief Chief appeals for urgent funds and access to people in need of aid in famine-hit South Sudan/ Reliefweb
WFP shocked by 'destruction' in northeast Nigeria/ DW 
This is what it's like to deliver aid in South Sudan/ Devex
'Switched on' Uganda welcomes refugees - but at an environmental cost/ TheGuardian
U.N. says tide of refugees from South Sudan rising fast/ Reuters
UNHCR says 1.5 million South Sudan refugees fled to neighbouring countries
Politicised humanitarian aid is fuelling South Sudan's civil war/ IRIN 
As war persists, South Sudan's children suffer/ DW 
The women of Boko Haram: Driven to extremism/ DW 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum