Hoppa yfir valmynd
16. mars 2017 Matvælaráðuneytið

Stóraukinn stuðningur við aukið öryggi ferðamanna undir merkjum Safetravel

Safe Travel Þórdís og Smári
Safe Travel Þórdís og Smári

Ráðherra ferðamála og formaður Samtaka ferðaþjónustunnar skrifuðu í dag undir samstarfssamning við Slysavarnafélagið Landsbjörg sem felur í sér stóraukinn stuðning við verkefnið Safetravel. 

Samningurinn er til þriggja ára og hljóðar upp á 35 milljónir króna á ári, til viðbótar við framlag Slysavarnafélagsins Landsbjargar í formi fjármuna og vinnu af hálfu sjálboðaliða félagsins.  Ráðuneyti ferðamála leggur fram 25 milljónir króna á ári en lagði til samanburðar fram 16 milljónir á liðnu ári. Samtök ferðaþjónustunnar auka sitt framlag úr 6 milljónum árið 2016 í 10 milljónir á ári. Auk þess styður Icelandair Group verkefnið myndarlega.

Samningurinn markar tímamót og skapar forsendur til að auka verulega við Safetravel verkefnið sem Slysavarnafélagið Landsbjörg sinnir varðandi slysavarnir og öryggismál ferðamanna og hefur félagið þó unnið mikið og gott starf á þessu sviði um árabil.

Verkefni sem stefnt er að því að efla á grundvelli þessa samnings eru meðal annars:

  • Hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar
  • Skjáupplýsingakerfi ferðamanna
  • Vefurnin Safetravel.is, m.a. með þýðingu á akstursefni vefsins á kínversku
  • Upplýsingamiðstöð Safetravel, m.a. með lengri viðveru starfsmanna

Þá eru ótalin fjölmörg verkefni sem Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur sinnt undir merkjum Safetravel og mun gera áfram svo sem margvísleg útgáfa á fræðsluefni, fyrirlestrar, endurnýjun sprungukorta á jöklum og fleira. Samningurinn veitir einnig aukið svigrúm til að móta áherslur og verkefni frá ári til árs.

„Öryggi og slysavarnir, ekki síst með góðri upplýsingagjöf og fræðslu, eru eitt af forgangsmálum ferðaþjónustunnar og það er ánægjulegt að undirstrika það hér með afgerandi hætti. Það er okkur dýrmætt í þessu sambandi að geta nýtt þá framúrskarandi fagmennsku, metnað og þekkingu sem Slysavarnafélagið Landsbjörg býr yfir,“ segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála.  

„Það er mjög ánægjulegt að nú hafa samstarfsaðilar Safetravel ákveðið að festa verkefnið enn frekar í sessi með því að staðfesta þátttöku í því til þriggja ára. Öryggi ferðamanna er forsenda þess að gæði geti skapast í íslenskri ferðaþjónustu og við megum aldrei að gefa neinn afslátt þegar kemur að öryggismálum. Við hjá Samtökum ferðaþjónustunnar fögnum þessu framtaki og munum leggja okkar af mörkum til að öryggi ferðamanna verði ávallt haft í fyrirrúmi,“ segir Grímur Sæmundsen formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.  

„Áherslur á slysavarnir ferðamanna hafa aukist hjá félaginu síðasta áratuginn og undanfarið undir merkjum Safetravel. Því fögnum við þessum áfanga enda hefur Slysavarnafélagið Landsbjörg lagt mikið í þetta málefni. Þörfin er sannarlega til staðar og ekki síst þessi misserin í ljósi fjölgunar ferðamanna,“ segir Smári Sigurðsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar.  

Safe Travel Þórdís og Smári


 Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála og Smári Sigurðsson formaður Landsbjargar

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum