Hoppa yfir valmynd
20. mars 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Styrkir úr Þróunarsjóði innflytjendamála 2016-2017

Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags. Við ákvörðun um styrkveitingar verður að þessu sinni lögð áhersla á eftirfarandi:

  • Rannsóknar- og þróunarverkefni sem leggja áherslu á þau samfélagslegu áhrif sem fólk af erlendum uppruna hefur á íslenskt samfélag.
  • Rannsóknar- og þróunarverkefni sem falla vel að áherslum þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2016-2019 sem samþykkt var á Alþingi 20. september 2016.
  • Rannsóknar- og þróunarverkefni sem stuðla að virkri þátttöku innflytjenda í samfélaginu og auka sýnileika þeirra.
  • Önnur rannsóknar- og þróunarverkefni koma einnig til álita.

Styrkir verða veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum og eru félags- og hagsmunasamtök innflytjenda sérstaklega hvött til þess að sækja um. Einstaklingum verða að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Til ráðstöfunar eru 15 milljónir króna. Styrkir geta numið að hámarki 75% af áætluðum heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að sækja um jafnt á íslensku og ensku.

Umsóknarfrestur er til 7. apríl 2017. Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins (minarsidur.stjr.is).

Vísað er á nánari upplýsingar um þróunarsjóðinn á vef velferðarráðuneytisins, meðal annars reglur þróunarsjóðs innflytjendamála með nánari upplýsingum um skilyrði fyrir styrkveitingum. Einnig er bent á framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.  

Nánari upplýsingar fást í velferðarráðuneytinu í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið [email protected]. Trúnaðar er gætt við meðferð allra umsókna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum